Byggðastofnun gert að greiða 400.000 í sátt
Fjármálaeftirlitið og Byggðastofnun gerðu með sér sátt í síðasta mánuði vegna brots stofnunarinnar á lögum um verðbréfaviðskipti. Var það mat FME að fjárhæð sáttarinnar væri hæfilega ákveðin 400.000 kr.
Með sáttinni gekkst Byggðastofnun, sem útgefandi skráðra skuldabréfa, við því
að hafa brotið gegn 128. gr. laga um verðbréfaviðskipti með því að hafa ekki skilað lista yfir
fruminnherja til FME innan tilskilins frests þrátt fyrir áminningu þar um.
Í greininni er kveðið á um skyldu útgefenda til að senda FME, í því formi sem eftirlitið ákveður, upplýsingar um fruminnherja, tímabundna innherja og aðila fjárhagslega tengda innherjum.
Allar breytingar á upplýsingum skv. 1. mgr. 128. gr. laganna skulu tilkynntar FME þegar í stað. Endurskoðaðan lista yfir innherja skal senda FME eigi sjaldnar en á
sex mánaða fresti.



















