Grikkir ræða við lánardrottna
Grískir leiðtogar hafa átt fundi með lánardrottnum í dag um að fá umtalsverðar afskriftir á skuldum ríkisins svo koma megi í veg fyrir þjóðargjaldþrot.
Lucas Papademos, forsætisráðherra landsins, og fjármálaráðherrann Evangelos Venizelos funduðu með Charles Dallara, yfirmanni Alþjóðafjármálastofnunarinnar (IIF), í einn og hálfan tíma í dag. Í gær funduðu þeir einnig.
Heimildarmaður AFP innan gríska fjármálaráðuneytisins sagði að mikill árangur hefði náðst á fundinum í gær varðandi tækni- og lagaleg atriði. Hann lagði hins vegar áherslu á að enn væri mikið verk eftir óunnið.
„Við erum skrefi frá,“ sagði Venizelos og bætti við að samningaviðræðurnar væru erfiðar og viðkvæmar.
Grikkir vonast til að lánardrottnarnir samþykki að lækka 200 milljarða evra skuld um helming. Viðræðurnar snúast m.a. um það hversu háa vexti gríska ríkið eigi að greiða af eftirstöðvunum.



















