Viðskipti
| mbl
| 28.1.2012
| 13:07
| Uppfært
29.1.2012
19:47
Grípa verður til ólíkra aðgerða
Christine Lagarde, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að óviðeigandi niðurskurður geti kæft mögulegan hagvöxt. Hún segir að sníða þurfi aðhaldsaðgerðir eftir aðstæðum í viðkomandi hagkerfum. Það eigi því ekki að grípa til nákvæmalega sömu aðgerða í öllum ríkjum.
Þetta kom fram á efnahagsráðstefnu sem haldin er í Davos í Sviss. AGS er á meðal þeirra sem hafa lagt á það áherslu að ríki dragi úr skuldum, en sumir hafa áhyggjur af því að þetta geti hamlað vexti.
Á ráðstefnunni hefur mikið verið rætt um það hver séu réttu viðbrögðin við vandanum á evrusvæðinu, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















