Viðskipti
| Morgunblaðið
| 28.1.2012
| 7:00
Spá betri afkomu Icelandair milli ára
Tap Icelandir á fjórða ársfjórðungi síðasta árs gæti numið 1,7 milljörðum króna, að því er fram kemur í afkomuspá IFS Greiningar.
Það er er hins vegar nokkuð betri afkoma heldur en á sama fjórðungi fyrir ári þegar tap Icelandair nam 2,2 milljörðum króna.
Icelandir birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2011 vikuna 6. til 10 febrúar næstkomandi og samkvæmt spá IFS verður hagnaður félagsins fyrir allt síðasta ár um 2,9 milljarðar króna, borið saman við 4,6 milljarða árið 2010.
IFS mælir með kaupum á hlutabréfum Icelandair. Gengi bréfanna stendur í 5,07 krónur á hlut, en samkvæmt verðmati IFS ætti gengið að vera 6 krónur á hlut.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















