Viðskipti
| mbl
| 28.1.2012
| 8:00
| Uppfært
22.5.2012
10:52
Tchenguiz vill selja eignir til að losna við skuldir
Kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz hyggst losa sig við miklar skuldir með því að selja fasteignir. Breskar dagblaðið The Independent segir að umfangsmesta fasteignasala í sögu Bretlands sé í þann mund að fara hefjast.
Fjárfestingar Tchenguiz í fasteignum nema um 1% allra fasteigna í Bretlandi. Þetta eru um 250.000 heimili, þar af 15.000 í Lundúnum. Talið er að Tchenguiz vilji fá þrjá milljarða punda fyrir eignirnar (um 580 milljarða kr.). En skuldir vegna þeirra nema um 2 milljörðum punda.
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), handtók á síðasta ári bræðurna Robert og Vincents Tchenguiz, í tengslum við rannsókn sína á starfsemi Kaupþings í Bretlandseyjum. Bræðurnir voru í umsvifamiklum viðskiptum við bankann.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















