Viðskipti
| mbl
| 28.1.2012
| 20:24
| Uppfært
29.1.2012
17:32
Þiggur ekki 270 milljóna kaupauka
Philip Hampton, stjórnarformaður Royal Bank of Scotland, mun ekki þiggja 1,4 milljóna punda kaupaukagreiðslu, sem samsvarar um 271 milljón kr., í næsta mánuði.
Hann greindi bankanum frá því að honum þætti ekki við hæfi að þiggja kaupaukann, en um er að ræða 5,17 milljón hluti í bankanum sem er að stærstum hluta í almannaeigu. Þetta kemur fram á vef breska útvarpsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















