Grískir leiðtogar samstiga
Forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, segir samstöðu ríkja meðal þeirra stjórnmálaflokka í landinu sem styðja ríkisstjórn landsins varðandi þann niðurskurð sem nauðsynlegur er í Grikklandi.
Papademos átti fund með George Papandreou, leiðtoga sósíalista, Antonis Samaras, leiðtoga Nýja lýðveldisflokksins, og leiðtoga hægri öfgamanna, George Karatzaferis, í dag en nauðsynlegt er að grípa til verulegs niðurskurðar svo Grikkir fái frekari utanaðkomandi aðstoð.
Hann segir að viðræður við lánardrottna gríska ríkisins séu ekki auðveldar en óttast að ef þær skili ekki árangri sé hætta á greiðslufalli ríkisins.
Papademos hefur reynt að ná samkomulagi við lánardrottna um að afskrifa um 100 milljarða evra af skuldum gríska ríkisins. Eins er unnið að því að ná samkomulagi við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um frekari aðstoð.



















