Vilja atkvæðagreiðslu um bónusa
Þingmenn Verkamannaflokksins í Bretlandi íhuga að þvinga fram atkvæðagreiðslu á breska þinginu eftir helgi um að bankastjóri Royal Bank of Scotland verði gert að afsala sér kaupaukagreiðslu. AFP fréttastofan hefur þetta eftir heimildum innan Verkamannaflokknum.
Breska ríkið kom RBS til bjargar í október 2008 og á 82% hlut í bankanum. Á fimmtudag var greint frá því að Stephen Hester, bankastjóri RBS, fengi greidd 963 þúsund pund, 187 milljónir króna, í kaupauka í ár auk þess sem árslaun hans nema 1,2 milljónum punda.
Hvernig sem atkvæðagreiðslan fer á breska þinginu er niðurstaða hennar ekki bindandi fyrir ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata en stjórnin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir bónusgreiðslur bankans á sama tíma og mikill niðurskurður er í útgjöldum hins opinbera.
Ráðherrar í ríkisstjórninni hafa um helgina reynt að verja ákvörðun RBS og segir Danny Alexander, aðstoðarfjármálaráðherra, að ef breska ríkið hefði tekið bankann að fullu á sínum tíma hefði það verið mun meiri fjárhagsleg áhætta fyrir breska skattgreiðendur.
Iain Duncan Smith, sem fer með atvinnumál og lífeyrismál í ríkisstjórninni, segir að ríkisstjórnin geti ekki gripið fram fyrir hendur stjórnar RBS og til þess að hægt sé að afnema bónusgreiðslur Hesters þyrfti að reka bankastjórnina eins og hún leggur sig. Slíkt myndi valda glundroða.



















