Viðskipti
| AFP
| 30.1.2012
| 10:51
| Uppfært
13:58
Betri kjör hjá ítalska ríkinu
Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir tvo milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Um er að ræða skuldabréf til tíu ára. Ávöxtunarkrafan er 6,08% samanborið við 6,98% í síðasta útboði í desember.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Ítalíu var tilboðum í skuldabréf til fimm ára fyrir 3,75 milljarða evra tekið og var ávöxtunarkrafan af þeim 5,39% samanborið við 6,47% í síðasta útboði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















