Viðskipti
| mbl
| 30.1.2012
| 10:07
| Uppfært
13:58
Þiggur ekki bónus
Forstjóri Royal Bank of Scotland, Stephen Hester, hefur ákveðið að þiggja ekki kaupauka sem hann átti að fá fyrir störf á síðasta ári, alls 963 þúsund pund, 187 milljónir króna.
Viðskiptaritstjóri BBC, Robert Peston, segir að Hester muni afþakka bónusgreiðsluna, sem hann átti að fá greidda í hlutabréfum í RBS, eftir að hafa orðið að lúta í lægra haldi fyrir pólitískum þrýstingi.
BBC hefur eftir George Osborne, fjármálaráðherra, að ákvörðun Hesters sé skynsamleg og fagnaði ákvörðun hans.
Formaður Verkamannaflokksins, Ed Miliband, segir að forstjóri RBS hafi gert það eina rétta með ákvörðun sinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















