Viðskipti
| AFP
| 1.2.2012
| 15:26
| Uppfært
22:22
Flugfarþegum fjölgaði um 5,9%
Flugfarþegum fjölgaði um 5,9% í heiminum á síðasta ári þrátt fyrir frekar erfiðar rekstraraðstæður, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasambandi flugfélaga, International Air Transport Association. Aftur á móti drógust fraktflutningar saman um 0,7%.
Í desember fjölgaði flugfarþegum um 5,4% samanborið við desember árið 2010 og er sá mánuður undantekning frá þróuninni síðustu sex mánuði ársins þegar farþegum fækkaði heldur milli ára.
Aukningin er mest í ríkjum eins og Brasilíu, Indlandi og Kína þar sem flugfarþegum fjölgaði um helming. Svipað er uppi á teningnum varðandi fraktflutninga í þessum löndum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















