Fylgjast grannt með Facebook
Forsvarsmenn Facebook munu væntanlega óska eftir því við bandaríska fjármálaeftirlitið, Securities and Exchange Commission (SEC), í dag að hlutabréf félagsins verði skráð á markað.
Í hlutabréfaútboði er stefnt að því að safna 10 milljörðum Bandaríkjadala, rúmum 1.230 milljörðum króna, samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla. Hins vegar draga ýmsir sérfræðingar á fjármálamarkaði það í efa og telja að fjárhæðin verði lægri. Væntanlegt markaðsvirði Facebook yrði á milli 75 og 100 milljarðar dala að loknu útboði, samkvæmt frétt Washington Post í dag.
Samskiptavefurinn Facebook hefur vaxið og dafnað undanfarin ár en hingað til hafa forsvarsmenn fyrirtækisins sýnt lítinn áhuga á að skrá Facebook á markað og miklu frekar viljað einbeita sér að innri vexti.
Fjárfestar bíða hins vegar spenntir og er talað um að útboðið fái álíka athygli og þegar Google fór í almennt hlutafjárútboð árið 2004.



















