Góð afkoma hjá Marel
Hagnaður Marels á síðasta ári nam 34,5 milljónum evra, 5,6 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 13,6 milljónir evra árið á undan. Er þetta 152,9% aukning á milli ára.
Tekjur ársins 2011 námu 668 milljónum evra, sem er 15% aukning samanborið við tekjur af kjarnastarfsemi árið áður.
Í tilkynningu kemur fram að árið 2011 var mjög gott hjá Marel. Leiðréttur rekstrarhagnaður var 10,9% af veltu sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu á árinu. Horfur fyrir árið 2012 eru jákvæðar.
Greiða 6,9 milljónir evra í arð
Á aðalfundi 2012, sem haldinn verður 29. febrúar nk., mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái 0,95 evru sent greidd í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2011.
Miðað við fjölda útistandandi hluta nú nemur fyrirhuguð heildararðgreiðsla um 6,9 milljónum evra, sem samsvarar um 20% af hagnaði ársins.
Á fjórða ársfjórðungi nam hagnaður Marels 15 milljónum evra samanborið við 5,5 milljónir evra á sama tímabili árið á undan.
|
|
Upplýsingar um afkomu Marels |




















