Viðskipti
| mbl
| 1.2.2012
| 15:38
| Uppfært
17:32
Hafa lánað 4,6 milljarða til ferðaþjónustu
Heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu voru um 4,6 milljarðar í lok árs 2011.
Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi.
Þau ferðaþjónustufyrirtæki sem tekið hafa lán hjá Byggðastofnun eru dreifð vítt og breitt um landið en ekkert sveitarfélag hefur yfir 8% af heildarútlánum stofnunarinnar til ferðaþjónustu.
Ef borin eru saman árin 2009 og árið 2011 er niðurstaðan að dreifing útlána árið 2011 er töluvert meiri og jafnari um landið árið 2011 en 2009, að því er fram kemur á vef Byggðastofnunar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















