Viðskipti
| AFP
| 1.2.2012
| 13:43
Hagnaður Roche eykst um 7%
Hagnaður svissneska lyfjafyrirtækisins Roche jókst um 7% á síðasta ári og nam 9,5 milljörðum svissneskra franka, 1.280 milljörðum króna.
Rekstrarhagnaður Roche nam 15,1 milljarði franka sem er 9% minni hagnaður en árið á undan. Sala Roche dróst saman um 10% á árinu og var 42,5 milljörðum franka.
Roche hefur gert 5,7 milljarða Bandaríkjadala óvinveitt yfirtökutilboð í bandaríska erfðafyrirtækið Illumina. Að sögn forstjóra Roche, Severin Schwan, er hann sannfærður um að hluthafar samþykki söluna þrátt fyrir að tilboðið sé ekki gert með samþykki stjórnar Illumina.
Hlutabréf Roche hafa lækkað um 0,64% í svissnesku kauphöllinni í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















