Hlutur Bjargar Evu í Smugunni seldur
Sigþrúður Jónasdóttir er nú komin inn í hluthafahóp Smugunnar, eftir að Björg Eva Erlendsdóttir sleit sín tengsl við vefritið þegar hún var skipuð formaður nýrrar stjórnar RÚV.
Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið skulu stjórnarmenn þess ekki hafa nokkurra hagsmuna að gæta í öðrum fjölmiðlafyrirtækjum. Björg Eva átti 4,57% hlut í Smugunni og þegar tilkynnt var um skipan hennar í stjórn Rúv vakti Viðskiptablaðið fyrst athygli á því að seta hennar þar kynni því að varða við lög. Björg Eva sagðist munu bregðast við með því að selja eignarhlut sinn þegar í stað.
Við það stóð hún og hefur Sigþrúður Jónasdóttir, náttúrufræðingur, keypt 4,76% hlut hennar. Sigrúður starfar fyrir Landgræðslu ríkisins og skipar fjórða sæti í lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi. Stærsti einstaki hluthafi Smugunnar er Vinstri hreyfingin - grænt framboð, með 40,24% hlut.



















