Störfum fækkað um 13 þúsund
Bandaríska flugfélagið American Airlines þarf að minnka kostnað um 20% ef fyrirtækið á að halda áfram starfsemi. Forsvarsmenn fyrirtækisins, sem er í greiðslustöðvun, ræða nú við forsvarsmenn stéttarfélaga þar sem flugfélagið þarf að fækka starfsmönnum umtalsvert, jafnvel um 13 þúsund.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa fjallað um mögulegar uppsagnir starfsmanna American Airlines og er rætt um að starfsmönnum verði fækkað um allt að 13 þúsund sem þýðir að 15% starfsmanna muni missa vinnuna.
Ekki hefur verið rætt um að fækka áfangastöðum heldur boða stjórnendur American Airlines sókn á lykilstaði innan Bandaríkjanna á næstu fimm árum.
AMR, sem á og rekur American Airlines og American Eagle Airlines, er með 88.500 starfsmenn. Hinn 29. nóvember á síðasta ári fékk fyrirtækið greiðslustöðvun og fær því tækifæri til að endurskipuleggja rekstur og semja við lánardrottna.
AMR á um 900 flugvélar og flýgur til ríflega 250 flugvalla í yfir 50 löndum.



















