Actavis dregur hagnað niður
Höfuðstöðvar Deutche Bank í Frankfurt AP
Þýski bankinn Deutche Bank afskrifaði 407 milljónir evra, 66 milljarða króna, vegna Actavis á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Uppgjör bankans var undir væntingum á síðasta ári.
Deutsche Bank, sem er stærsti banki Þýskalands, hagnaðist um 147 milljónir evra, 24 milljarða króna, sem er 76% minni hagnaður en árið á undan.
Afkoma bankans olli fjárfestum vonbrigðum og hafa hlutabréf bankans lækkað í verði í kauphöllinni í Frankfurt í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá Deutche Bank gekk almenn bankaþjónusta vel á síðasta ári en skuldakreppan hafi litað afkomu fjárfestingarbankastarfsemi hans.
Deutsche Bank hagnaðist um 4,3 milljarða evra á síðasta ári sem er 87% aukning á milli ára. Helsta skýringin á auknum hagnaði er tilkominn vegna afkomu Postbank og annarrar fjármálaþjónustu sem Deutsche Bank yfirtók á árinu 2011.
Deutsche Banklánaði Actavis 4,7 milljarða evra þegar hann var bakhjarl Björgólfs Thors Björgólfssonar er hann keypti aðra hluthafa út úr Actavis árið 2007 með skuldsettri yfirtöku.



















