Afkoma New York Times versnar
Hagnaður bandaríska útgáfufélagsins Times, sem meðal annars gefur út dagblöðin New York Times, Boston Globe og International Herald Tribune, dróst saman um 12% á fjórða ársfjórðungi en helsta skýringin er samdráttur í auglýsingasölu í dagblöðum útgáfunnar og léleg afkoma upplýsingavefjarins, About.com.
Hagnaðurinn nam 58,9 milljónum Bandaríkjadala, 7,3 milljarða króna. Tekjurnar drógust saman um 2,8% og voru 643 milljónir króna.
Tap Times Co. á síðasta ári nam 39,7 milljónum dala samanborið við 108 milljóna dala hagnað árið 2010. Er tapið einkum rakið til lélegrar afkomu svæðisbundinna dagblaða en ákveðið hefur verið að selja 16 slík blöð út úr samstæðunni fyrir 143 milljónir dala.
Í árslok 2011 voru áskrifendur New York Times og International Herald Tribune á netinu 390 þúsund talsins en þeir voru 324 þúsund talsins í lok þriðja ársfjórðungs. 16 þúsund áskrifendur eru að Boston Globe á netinu.



















