Viðskipti
| Morgunblaðið
| 2.2.2012
| 6:30
FME skoðar Haga
Fme hefur frá því snemma í desember haft til skoðunar með hvaða hætti Arion banki stóð að útboði á hlut í Högum.
Einungis degi eftir að útboðinu lauk, birti bankinn aukaútboðslýsingu, þar sem greint var frá því að við endurskoðun hefði liðlega hálfur milljarður króna „fundist“ sem bætti fjárhagsstöðu Haga sem því nam.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fékk FME tilkynningu um þetta frá bankanum fyrrihluta desembermánaðar og í kjölfar þess var ákveðið að FME myndi kanna hvernig stóð á því að þessar rúmlega 500 milljónir komu ekki fram í upphaflegri útboðslýsingu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















