Viðskipti
| AFP
| 2.2.2012
| 11:20
Góð sala á frönskum ríkisskuldabréfum
Ríkissjóður Frakklands tók tilboðum fyrir 7,962 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá franska fjármálaráðuneytinu var töluverð eftirspurn eftir skuldabréfum og er ávöxtunarkrafan 3,13% á bréfum til tíu ára. Eins voru boðin út skuldabréf til sex og átta ára.
Alls var tekið tilboðum fyrir 5,698 milljarða evra í skuldabréf til tíu ára. Tilboðum fyrir 1,253 milljarða evra í skuldabréf til átta ára á 2,91% ávöxtunarkröfu og sex ára bréf fyrir 1,001 milljarð evra á ávöxtunarkröfunni 2,44%.
Í síðasta mánuði lækkaði matsfyrirtækið Standard and Poor's lánshæfiseinkunn Frakkalands um eitt þrep.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















