Morrisons bauð ekki
Breska smásölukeðjan Morrisons tók ekki þátt í útboði á 77% hlut slitastjórna Landsbankans og Glitnis í smásölukeðjuna Iceland Foods.
Í frétt breska blaðsins Independent í dag kemur fram að fjárfestingarfélögin Bain Capital og BC Partners eru talin vera þau einu sem gerðu tilboð í Iceland en tilboðsfresturinn rann út á miðnætti á þriðjudag. Orðrómur hafði verið um að fjárfestingarfélagið Blackstone myndi einnig taka þátt í útboðinu en svo virðist ekki vera, samkvæmt frétt Independent.
Forstjóri Iceland Foods, Malcolm Walker, sem fer með 23% hlut í keðjunni ásamt fleiri stjórnendum Iceland, á rétt á að jafna hæsta tilboðið sem berst. Það þýðir að hann hefur 42 daga til þess að útvega fjármagn til þess að jafna boðið. Talið er að um 1,5 milljarður punda, 292 milljarða króna, fáist fyrir keðjuna.
Morrisons hefur áhuga á að kaupa einhverjar verslanir Iceland keðjunnar af þeim sem kaupir keðjuna og fleiri smásölukeðjur í Bretlandi hafa lýst yfir áhuga á að kaupa verslanir út úr keðjunni.




















