Viðskipti
| AFP
| 2.2.2012
| 10:48
Segja upp 7.300 starfsmönnum
Lyfjafyrirtækið AstraZeneca ætlar að segja upp 7.300 starfsmönnum fyrir lok árs 2014 en uppsagnirnar eru liður í niðurskurði fyrirtækisins sem hyggst draga verulega úr rekstrarkostnaði.
AstraZeneca, sem er skráð í kauphöllina í Lundúnum, ætlar meðal annars að kaupa aftur eigin hlutabréf upp á 4,5 milljarða punda í ár.
AstraZeneca sagði upp 12.600 starfsmönnum á árunum 2007-2009 og á síðasta ári var 9 þúsund til viðbótar sagt upp.
Hagnaður AstraZeneca jókst um 23% á síðasta ári og nam 9,98 milljörðum punda, 1.942 milljörðum króna, samanborið við 8,053 milljörðum punda árið 2010. Hins vegar dróst rekstrarhagnaður saman milli ára um 4% og var 13,2 milljarðar punda.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















