Skuldatryggingarálag á niðurleið
mbl.is
Skuldatryggingarálagið á Ísland stendur í 292 punktum og hefur það ekki farið yfir 300 punkta frá 20. janúar síðastliðinn. Þetta kemur fram í morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
Um síðustu áramót stóð það í 317 punktum en á sama tíma í fyrra var það 279 punktar. Er því álagið nú lítið eitt hærra, en miklar sveiflur eru á því frá einum degi til annars, og má geta þess að munurinn er afar lítill í samanburði við hversu mikill munur er á því hjá öðrum ríkjum, segir í Morgunkorni.
Lægst í Noregi
Eins og svo oft áður var skuldatryggingarálagið á Noreg lægst í gær, um 36 punktar, og næstlægst er það á Sviss, um 47 punktar. Hefur álagið á þessi bæði ríki lækkað þó nokkuð frá síðustu áramótum en þá stóð álagið á Noregi í 45 punktum og álagið á Sviss í 68 punktum. Eins og á öllum öðrum ríkjum Vestur Evrópu er skuldatryggingarálagið hærra á þessi lönd nú en það var á sama tíma í fyrra en þá var álagið á Noreg 21 punktur og álagið á Sviss 42 punktar.
„Nokkur lækkun hefur orðið á skuldatryggingarálagi á ríki Vestur-Evrópu síðasta mánuðinn. Þannig var skuldatryggingarálagið að meðaltali 260 punktar í lok dags í gær á meðal ríkja Vestur-Evrópu, þá að Grikklandi undanskildu, en hafði verið um 277 punktar um síðustu áramót. Eins og fyrr segir er skuldatryggingarálag Grikklands undanskilið, enda bjagar það þennan samanburð verulega.
Má hér nefna að í lok dags í gær stóð það samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnvarveitunni í 6.121 punktum en um síðustu áramót var það 8.786 punktar. Þrátt fyrir að skuldatryggingarálagið hafa lækkað nokkuð er skuldatryggingarálagið á ríki Vestur Evrópu mun hærra en það var á sama tíma í fyrra, en þá var það rúmir 140 punktar og má augljóslega rekja það til þeirra miklu hræringa sem verið hafa í efnahagsástandi margra ríkja þar, enda mörg þeirra staðið í ströngu á tímabilinu vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.



















