Svissnesk úr rokseljast
Árið 2011 var metár hjá úraframleiðendum í Sviss en aldrei áður hefur verið flutt út jafn mikið af úrum og það ár. Sala á úrum hefur verið að aukast síðastliðin 20 ár, sé árið 2010 ekki tekið með. Mest var selt til Hong Kong.
Andvirði útfluttra úra hefur aldrei áður verið jafn mikið. Úr voru flutt út frá Sviss fyrir 16 milljarða evra eða rúmlega 2600 milljarða íslenskra króna.
Þrátt fyrir sterkt gengi svissneska frankans og erfitt markaðsumhverfi, er sterkur markaður fyrir úr, samkvæmt tilkynningu frá sambandi svissneskra úraframleiðenda. Sala fyrir árið 2011 fór upp um 19,2% miðað við árið á undan.
„Fyrir utan árið 2010, þegar salan minnkaði, hefur aukning í sölu síðustu 20 ár aldrei verið jafn mikil,“ segir í tilkynningunni.
En hækkandi verð á úrum vegna sterkrar stöðu frankans virðist ekki fæla kaupendur frá.
Mest var flutt út til Hong Kong eða fyrir 550 milljarða króna og næstmest til Frakklands fyrir 255 milljarða króna.
Swatch, stærsti úraframleiðandi heims, tilkynnti einnig þann 10. janúar að sölutölur þeirra fyrir árið 2011 hefðu verið meira en 938 milljarðar og var það í fyrsta skipti sem fyrirtækið selur úr fyrir slíka upphæð.



















