Viðskipti
| AFP
| 2.2.2012
| 10:25
Um 5 milljónir Spánverja án vinnu
Alls eru 4,6 milljónir Spánverja án atvinnu og hafa aldrei verið fleiri samkvæmt nýjum tölum frá ríkisstjórn Spánar. Tölur Hagstofu Spánar benda hins vegar til þess að mun fleiri séu án atvinnu eða 5,27 milljónir Spánverja sem svarar til 22,85% atvinnuleysis í landinu.
Ríkistjórnin hefur tekið saman tölur um atvinnuleysi frá árinu 1996 en helsta skýringin á mismunandi tölum eru ólíkar reikniaðferðir.
Tæpur helmingur ungmenna án atvinnu
Samkvæmt tölum ríkisstjórnarinnar fjölgaði atvinnulausum um 177.470 í janúar frá mánuðinum á undan. Sem svarar til 4% aukningu milli mánaða.
Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru 48,6% ungmenna á aldrinum 16-24 ára án atvinnu á Spáni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















