Vegglist fyrir 24,7 milljarða
Listamaðurinn David Choe er einn þeirra sem væntanlega gleðjast yfir ákvörðun stjórnenda Facebook að skrá hlutabréf fyrirtækisins á markað. Því Choe þáði að fá greitt í hlutabréfum í stað peninga fyrir veggjalist sem hann vann fyrir Facebook á sínum tíma. Bréf hans eru nú metin á allt að 200 milljónir Bandaríkjadala, 24,7 milljarða króna. Bréfin fékk hann sem greiðslu fyrir að gera veggskreytingu í fyrstu höfuðstöðvum Facebook í Palo Alto í Kaliforníu árið 2005.
Í frétt á vef New York Times kemur fram að væntanlegt hlutafjárútboð samskiptavefjarins Facebook og skráningu hlutabréfa á markað í kjölfarið muni gera ýmsa að milljarðamæringum.
Hlutur Zukerbergs metinn á 3.503 milljarða króna
Í gærkvöldi var tilkynnt um að Facebook ætlaði að bjóða út 5 milljarða dala í útboði síðar á árinu. Miðað við það er markaðsvirði félagsins 75 milljarðar dala, 9.250 milljarðar króna, hið minnsta.
Einhverjir þeirra sem eiga eftir að hagnast vel á útboðinu, ákveði þeir að selja bréf sín, eru þekktir einstaklingar. Þar er stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, þekktastur en hann á 533,8 milljónir hluta, sem eru metnir á 28,4 milljarða dala, 3.503 milljarða króna ef miðað er við 53 dali á hlut. Zuckerberg, 27 ára, á 28,4% hlutafjár en fer með atkvæðisrétt 57% af hlutafé félagsins.
Fyrstu utanaðkomandi fjárfestirinn sem keypti í Facebook, Peter Thiel, á 44,7 milljónir hluta sem væntanlega eru rúmlega tveggja milljarða dala virði.
Accel Partners sem fjárfesti í Facebook fyrir sjö árum fer með 201,4 milljónir hluta. Það þýðir að fjárfestingin hefur væntanlega þúsundfaldast á þeim tíma.
483 milljónir jarðarbúa fara á Facebook á hverjum degi
Samkvæmt frétt USA Today var komið að því að Facebook myndi skrá félagið á markað þar sem hluthafarnir eru orðnir fleiri en 500. Samkvæmt reglum sem gilda um verðbréfaviðskipti í Bandaríkjunum er þess krafist að hægt sé að eiga viðskipti með bréf félagsins á opinberum markaði, samkvæmt frétt USA Today.
Facebook birti í gærkvöldi afkomu sína opinberlega í fyrsta sinn. Hagnaðurinn jókst á síðasta ári um 65% og var einn milljarður Bandaríkjadala. Tekjurnar jukust um 88% og voru 3,7 milljarðar dala. Eins eyðir Facebook meira en áður en kostnaðurinn ríflega tvöfaldaðist á milli ára og var 1,96 milljarðar dala á síðasta ári.
Notendur Facebook eru 845 milljónir talsins í hverjum mánuði sem er 39% aukning á milli ára. Daglegir notendur eru 483 milljónir talsins sem er 48% aukning á milli ára.



















