Viðskipti
| AFP
| 2.2.2012
| 23:29
Zuckerberg á 28,8%
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, mun áfram eiga meirihluta í fyrirtækinu, þrátt fyrir að það fari senn á hlutabréfamarkað. Nokkuð hefur verið á huldu hversu stóran hlut hann á í fyrirtækinu, en nú hefur komið í ljós að hlutur hans er 28,2%.
Zuckerberg stofnaði Facebook þegar hann var 19 ára gamall. Nú er fyrirtækið metið á 100 milljarða Bandaríkjadollara og eign hans nemur því um 28 milljörðum dollara.
Að auki fer hann með 57% atkvæðisréttar í fyrirtækinu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















