Viðskipti
| mbl
| 3.2.2012
| 9:01
| Uppfært
9:45
Vöruskiptin hagstæð um 12 milljarða
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2012 var útflutningur fob tæpir 49,3 milljarðar króna og innflutningur fob 37,2 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12% milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.
Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að vegna umfangsmikilla breytinga sem urðu á tollskrárnúmerum um áramótin, bæði hér á landi og erlendis, er ekki hægt að birta nú sundurliðunartöflu með helstu liðum samkvæmt venju.
Tollskrárnúmerin tengjast alþjóðlegum flokkunarkerfum sem sundurliðunin byggir á og eru alþjóðastofnanir ekki búnar að uppfæra flokkunarkerfin í samræmi við breytingarnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















