36% hlutur í Íslenskum verðbréfum hf. í opið söluferli
Eigendur að 36% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut þeirra í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Íslandsbanka hf., Hildu hf. og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.
Íslensk verðbréf hf. er sjálfstætt starfandi eignastýringarfyrirtæki sem hefur þjónað einstaklingum og fagfjárfestum frá 1987. Í lok árs 2011 námu eignir í stýringu tæplega 130 milljörðum kr. Íslensk verðbréf eru með höfuðstöðvar á Akureyri og hjá félaginu starfa rúmlega 20 manns sem sinna fjölþættri þjónustu við viðskiptavini félagsins.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, auk aðila sem búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 300 milljónir kr. Seljendur áskilja sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.



















