Afgangurinn eykst um 49%
Sjávarútvegur mun væntanlega skila meiri útflutningstekjum í ár en í fyrra mbl.is
Afgangur af vöruskiptum í janúar er mun meiri en hann var í janúar í fyrra, eða sem nemur um 49% á föstu gengi, og einnig meiri en hann hefur að jafnaði verið síðasta árið.
Þannig nam afgangurinn af vöruskiptum í janúar í fyrra um 8,1 milljarði kr. reiknað á sama gengi, sem er svipað og hann var að meðaltali í mánuði hverjum síðasta árið. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands var afgangurinn 12 milljarðar í janúar 2012.
Útflutningur sjávarafurða skiptir miklu
Mikill vöxtur útflutnings milli ára skýrir aukinn afgang nú, en ekki liggur fyrir nein frekari sundurliðun á undirliðum útflutnings eða innflutnings að þessu sinni, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.
„Teljum við þó líklegt að meiri útflutningur sjávarafurða sé þar þungur á metum. Nam útflutningurinn í janúar um 49,3 ma.kr. en innflutningur 37,2 ma.kr. Leiðrétt fyrir gengi krónu jókst útflutningur um 12% frá janúar í fyrra en innflutningur um tæp 4%,“ segir í Morgunkorni.
Útlitið er ágætt fyrir vöru- og þjónustuviðskipti á árinu. Sjávarútvegurinn mun líklega skila umtalsvert meiri tekjum þetta ár en í fyrra og ekkert lát virðist á vexti ferðamannaþjónustunnar, segir í Morgunkorni.
„Á móti er álverð nokkru lægra en það var að jafnaði í fyrra og innflutningur vöru og þjónustu mun að sennilega vaxa nokkuð milli ára. Fyrrnefndu liðirnir gætu hins vegar vegið þyngra, sérstaklega ef álverð heldur áfram að hækka líkt og það hefur gert frá áramótum. Áætlum við að afgangurinn af vöru- og þjónustuviðskiptum hafi verið á bilinu 135-145 ma.kr. í fyrra og gæti hann orðið svipaður, eða jafnvel öllu meiri, í ár,“ segir ennfremur í Morgunkorni.



















