Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 8:11
Bandaríkjadalur hækkar gagnvart evru
Gengi Bandaríkjadals hefur hækkað gagnvart evru á gjaldeyrismörkuðum í Asíu í morgun en dalurinn stendur enn höllum fæti gagnvart japanska jeninu.
Evran er skráð á 1,3126 Bandaríkjadali en var 1,3142 dali á gjaldeyrismörkuðum í New York í gærkvöldi. Evran lækkaði gagnvart jeni í morgun, er 100 jen samanborið við 100,18 jen í gærkvöldi. Bandaríkjadalur er skráður á 76,18 jen í dag en var 76,23 jen í New York í gærkvöldi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















