Bernanke: Sættum okkur ekki við aukna verðbólgu
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Ben S. Bernanke, segir að bankastjórn Seðlabankans muni ekki sætta sig við aukna verðbólgu til þess að skapa ný störf.
Bernanke kom fyrir fjárlaganefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær og varði þar ný verðbólgumarkmið Seðlabanka Bandaríkjanna. Í síðustu viku setti bankinn 2% verðbólgumarkmið á sama tíma og tilkynnt var um að stefnt væri að því að halda stýrivöxtum áfram í kringum 0%.
„Við erum ekki að sækjast eftir aukinni verðbólgu,“ svaraði Bernanke spurningu formanns fjárlaganefndar, Paul Ryan. „Við viljum ekki aukna verðbólgu og við líðum ekki hærri verðbólgu.“
Ryan velti því fyrir sér að bankinn myndi líta fram hjá aukinni verðbólgu til þess að standa við sinn þátt í markmiði um að skapa ný störf, að því er fram kemur í frétt Bloomberg fréttastofunnar.
Síðar í dag mun Vinnumálastofnun Bandaríkjanna kynna atvinnuleysistölur í landinu í janúar en flestir gera ráð fyrir að það mælist áfram 8,5%.



















