Viðskipti
| mbl
| 3.2.2012
| 11:28
| Uppfært
19:57
Ekkert fékkst upp í 7,8 milljarða kröfur
Engar eignir fundust í búi K08, félags í eigu Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, en lýstar kröfur í búið námu tæpum 7,8 milljörðum króna.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur var K08 tekið til gjaldþrotaskipta í júlí í fyrra en samkvæmt upplýsingum úr Lögbirtingablaðinu er skiptum lokið án þess að nokkuð hafi fengist greitt upp í kröfur.
Ingvar er einn þeirra starfsmanna Kaupþings sem fluttu lán sín vegna hlutafjárkaupa í Kaupþingi í einkahlutafélög stuttu fyrir hrun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















