Viðskipti
| mbl
| 3.2.2012
| 11:45
| Uppfært
19:56
Engar eignir í búi Sólmons
Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú Sólmons ehf. en stjórnarformaður félagsins var Magnús Ármann. Alls voru lýstar kröfur í búið rúmir 3,3 milljarðar króna.
Sólmon var tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. október sl.
Sólmon var á sínum tíma í eigu Materia Invest, eignarhaldsfélags Magnúsar Ármanns, Þorsteins M. Jónssonar og Kevins Stanfords. Sólmon átti á sínum tíma stóran hlut í FL Group en árið 2007 seldi félagið hlut sinn í FL Group fyrir 3,4 milljarða króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















