Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 11:55
| Uppfært
19:24
Hækkun í Evrópu
Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í morgun en fjárfestar bíða með mikilli eftirvæntingu eftir að tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum verði birtar síðar í dag. Þær þykja gefa góða vísbendingu um ástand efnahagsmála í landinu en Bandaríkin eru stærsta hagkerfi heims.
Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkað um 0,47%, CAC í París hefur hækkað um 0,32% og Dax í Frankfurt um 0,21%.
Í Mílanó hefur FTSE Mib vísitalan hækkað um 0,26% og í Madríd hefur Ibex-vísitalan hækkað um 0,65%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















