Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 8:03
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í viðskiptum í Asíu í morgun og er hækkunin rakin til væntinga um að atvinnuleysi hafi haldið áfram að minnka í Bandaríkjunum í janúar. Von er á upplýsingum um skráð atvinnuleysi í Bandaríkjunum síðar í dag.
Verð á hráolíu til afhendingar í mars hækkaði um 22 sent í New York og er 96,58 Bandaríkjadalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verið á Brent Norðursjávarolíu hækkað um 31 sent og er 112,38 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















