Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 9:41
Kína er ekki að kaupa Evrópu
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, segir að Kínverjar hafi hvorki áhuga né getu til þess að „kaupa Evrópu“ en ýmsir hafa haft áhyggjur af auknum fjárfestingum Kínverja í evru-ríkjunum.
Wen segir að Kínverjar séu reiðubúnir til samstarfs með Evrópu í baráttunni gegn skuldakreppunni. „Sumir telja að það þýði að Kína vilji kaupa Evrópu,“ sagði Wen í dag er hann ávarpaði fund þýskrar viðskiptasendinefndar í kínversku borginni Guangzhou. Viðskiptasendinefndin er í föruneyti kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, en hún er í tveggja daga opinberri heimsókn í Kína.
„Þessar áhyggjur eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og Kína hefur engan áhuga á og hefur ekki getu til þess,“ bætti Wen við þegar hann var spurður út í fjárfestingar Kínverja í Evrópu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















