Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 7:56
Lækkun í Tókýó
Verð á hlutabréfum í kauphöllinni í Tókýó í Japan lækkuðu um 0,51% við lokun í dag. Ástæðuna má rekja til þess að fjárfestar eru bíða eftir að fá að heyra nýjar atvinnutölur frá Bandaríkjunum, sem eru væntanlegar í dag, og þá ríkir óvissa um stöðu samkomulags sem ætlað er að taka á skuldavanda Grikkja.
Nikkei hlutabréfavísitalan lækkaði um 44,89 stig og er nú 8.831,93 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















