Viðskipti
| AFP
| 3.2.2012
| 9:48
| Uppfært
11:32
Lánshæfiseinkunn Sharp lækkuð
Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn japanska raftækjaframleiðandans Sharp um eitt þrep, úr A- í BBB+.
Sharp hefur nýlega gefið út afkomuviðvörun um að tap rekstrarársins verði um 3,8 milljarðar Bandaríkjadala, 469 milljarðar króna.
Í mati S&P kemur fram að horfur Sharp séu neikvæðar til lengri tíma litið. Matsfyrirtækið á von á því að vörur þær sem Sharp framleiðir eigi eftir að lækka í verði í framtíðinni og eins muni hátt gengi jensins hafa slæm áhrif á afkomu Sharp. Á sama tíma er óvíst um eftirspurn eftir vörum Sharp.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















