Ríkisflugfélag Ungverjalands gjaldþrota
Ríkisflugfélag Ungverjalands, Malev, er gjaldþrota. Félagið hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum, en það hefur starfað í 66 ár.
Það sem endanlega gekk frá flugfélaginu var ákvörðun Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að krefja félagið um endurgreiða margvíslega styrki sem félagið fékk frá ríkinu á árunum 2007-2010. Endurgreiðslan átti að nema 130 milljónum evra. Upphæðin er álíka há og allar tekjur félagsins voru á árinu 2010. Félagið átti enga möguleika á að greiða þessa upphæð og því var starfsemi þess stöðvuð.
Starfsmenn Malev eru 2.600 og félagið rekur 22 flugvélar. Félagið hefur séð um nærri helming allra flugferða sem fara frá flugvellinum í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.
Ríkisstjórn Ungverjalands ræðir nú leiðir til að stofna nýtt félag á grundvelli þess gamla. Viktor Orban forsætisráðherra sagði í útvarpsviðtali að til að það væri hægt þyrfti félagið að losa sig við „ýmsar beinagrindur“ sem það hefði verið að burðast með.



















