Samkeppniseftirlitið með auknar heimildir
Samkeppniseftirlitið mbl.is/Golli
Samkeppniseftirlitið hyggst beita markaðsrannsóknum sem undanfara hugsanlegra aðgerða, sem það hefur fengið heimild til að beita til að efla samkeppni. Aðgerðirnar geta m.a. falist í uppskiptingu markaðsráðandi fyrirtækja. Þetta kemur fram í umræðuskjali sem SE hefur gefið út.
Í dag var gefið út umræðuskjal þar sem eru birt drög að leiðbeiningum um beitingu ákvæðis, sem lögfest var í fyrra, og veitir Samkeppniseftirlitinu heimild til að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að efla samkeppni. Þar með talið er uppskipting markaðsráðandi fyrirtækja, ef SE getur sýnt fram á að staða þeirra á markaðnum feli í sér alvarlega röskun á samkeppni. Þessi heimild á sér ekki síst fyrirmynd í breskum samkeppnisrétti og hefur SE átt fundi með breskum samkeppnisyfirvöldum vegna málsins.
Meginrökin fyrir þessum auknu heimildum SE er að sérstaklega sé brýnt að verja eða efla samkeppni í efnahagskreppum. Áður en til þess komi að ákvæðinu verði beitt hyggst Samkeppniseftirlitið beita markaðsrannsóknum til að fá heildarsýn yfir samkeppnislegar aðstæður á markaði, enda verður að vera hægt að færa sönnur á hina samkeppnishamlandi háttsemi.
Með umræðuskjalinu er óskað eftir sjónarmiðum og athugasemdum um þessi áform Samkeppniseftirlitsins. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum um framkvæmd markaðsrannsókna og um það hvaða markaður skuli fyrst sæta slíkri rannsókn. Óskað er eftir sjónarmiðum fyrir 15. mars nk.



















