Viðskipti
| mbl
| 3.2.2012
| 12:08
| Uppfært
19:11
Samkomulag í sjónmáli
Samkomulag um endurskipulagningu um 200 milljarða evra skuldar gríska ríkisins er í burðarliðnum, samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Talsmaður Olli Rehns, sem fer með efnahagsmál hjá framkvæmdastjórn ESB, Amadeu Altafaj, segir að útlit sé fyrir að samkomulag sé að nást en með því verður hægt að halda áfram viðræðum um nýjan björgunarpakka Grikklands hjá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















