Þremur sagt upp
Þremur var sagt upp störfum í útibúum Byrs og Íslandsbanka í Hafnarfirði í janúar, tveimur í Íslandsbanka og einum í Byr. Þetta kemur fram í frétt bæjarblaðinu Hafnarfirði.
Nýtt útibú Íslandsbanka eftir sameiningu fjármálastofnananna verður opnað 13. febrúar næstkomandi. Haft er eftir upplýsingafulltrúa Íslandsbanka í frétt Hafnarfjarðar að ráðist hafi verið í hagræðingaraðgerðir í janúar en þeim sé nú lokið. Lögð hafi verið áhersla á að takmarka uppsagnir eins og hægt væri.
Gengið hefur verið frá starfslokum starfsmanna sem fara á eftirlaun auk þess sem bankinn hefur ekki endurnýjað tímabundna ráðningarsamninga.
Útibússtjóri nýja útibúsins, sem verður í Strandgötu 8-10, verður Rúnar Björgvinsson og aðstoðarútibússtjóri Ásdís Garðarsdóttir sem verið hefur útibússtjóri Byrs í Hafnarfirði.



















