Tómt mál að tala um ársvexti
mbl.is
Nýtt fyrirtæki er komið á markað sem er ekki ósvipað smálánafyrirtækjunum Hraðpeningar og Kredia. Fyrirtækið nefnist Múla og býður upp á lán til einstaklinga frá 1.000 krónum og allt að 100.000 krónum.
Lánstími er allt að 30 dagar með möguleika á framlengingu upp í 60 daga frá lántökudegi. Vextirnir af láninu eru 1% prósent á dag.
Ævar Rafn Björnsson, framkvæmdastjóri Múla, segir í Morgunblaðinu í dag, að það sé tómt mál að tala um vexti á ársgrundvelli, því þeir láni ekki til eins árs. „Vextir og kostnaður er með því lægsta sem sést hefur í sambærilegri þjónustu í Evrópu,“ segir Ævar Rafn. „Það sem meira er að menn geta stytt lánstíma hvenær sem er. Ef þú tekur 30 daga lán, en hættir við eftir tvo daga og borgar upp lánið, þá fellur restin niður. Þú greiðir bara vextina fyrir dagana tvo sem þú varst með lánið.“



















