Viðskipti
| mbl
| 4.2.2012
| 20:37
| Uppfært
5.2.2012
17:33
2,8% atvinnuleysi í Noregi
Rúmlega 71 þúsund manns voru án vinnu í Noregi í lok janúarmánaðar sem er 12% minna en á sama tíma fyrir ári. Atvinnuleysið í Noregi mælist nú 2,8% sem er eitt það minnsta í Evrópu samkvæmt fréttavef norska ríkisútvarpsins NRK.
Fram kemur að á sama tíma sé vaxandi eftirspurn eftir starfsfólki. Þannig hafi verið auglýst 29.500 laus störf í janúar.
„Þetta sýnir að Noregur hefur hingað til orðið fyrir takmörkuðum áhrifum af efnahagskreppunni í Evrópu,“ er haft eftir atvinnumálaráðherra Noregs, Hanne Bjurstrøm, sem bætir því þó við að það sé barnaskapur að halda að svona geti þetta haldið áfram.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















