Viðskipti
| mbl
| 4.2.2012
| 19:54
| Uppfært
5.2.2012
17:31
Minna atvinnuleysi í Bandaríkjunum
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 8,3% og hefur það ekki mælst minna í þrjú ár samkvæmt upplýsingum frá atvinnumálaráðuneyti landsins eða síðan í febrúar 2009. Þetta kemur fram á fréttavef bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Channel 6.
Fram kemur ennfremur í fréttinni að 257 þúsund ný störf hafi orðið til í einkageiranum í Bandaríkjunum í janúar sem sé það mesta undanfarna níu mánuði. Er það mun meiri aukning en gert hafði verið ráð fyrir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















