70 eignir á 1.740 milljónir
Alls var 70 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 27. janúar til og með 2. febrúar 2012. Þar af voru 57 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.740 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum, samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár Íslands. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 130 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 14 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 219 milljónir króna og meðalupphæð á samning 15,7 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 79 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,4 milljónir króna.



















