Eignirnar jukust um 85 milljarða
Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.096,7 milljörðum króna um síðustu áramót. Heildareignir sjóðanna jukust um 85 milljarða á árinu. Þetta kemur fram í yfirliti frá Seðlabanka Íslands.
Í árslok 2008 námu eignir lífeyrissjóðanna 1.598 milljörðum. Eignir sjóðanna hafa því aukist um tæplega 500 milljarða á síðustu þremur árum. Eignaaukningin er tilkomin bæði vegna ávöxtunar og vegna greiðslu iðgjalda frá sjóðsfélögum. Árið 2010 námu iðgjöld sjóðsfélaga um 109 milljörðum, en sjóðirnir greiddu um 70 milljarða í lífeyri það ár.
Um síðustu áramót áttu lífeyrissjóðirnir 180 milljarða í hlutabréfum og jókst verðmæti hlutabréfaeignar um 50 milljarða á árinu. Verðmæti erlendra eigna lífeyrissjóðanna nam 470 milljörðum í árslok og breyttist nánast ekkert á árinu.



















