Fleiri afþakka bónusa
Lykilstjórnendur bresku járnbrautanna, Network Rail, munu ekki þiggja bónusgreiðslur í ár á sama tíma og tekist er á um slíkar greiðslur hjá fyrirtækjum sem eru að hluta í eigu breska ríkisins.
Í tilkynningu frá Network Rail kemur fram að forstjóri fyrirtækisins, David Higgins, og aðrir framkvæmdastjórar hjá fyrirtækinu munu ekki þiggja kaupauka í ár. Nýverið var harðlega deilt um háar bónusgreiðslur hjá bresku bönkunum Royal Bank of Scotland og Lloyds Banking Group sem ríkið þurfti að koma til bjargar haustið 2008.
Ræða átti um bónusgreiðslur hjá járnbrautafyrirtækinu á föstudag og hafði samgönguráðherra Bretlands, Justine Greening, lýst því yfir að hún myndi greiða atkvæði gegn fyrirhuguðum kaupaukum. Til stóð að greiða Higgins 340 þúsund pund, 66,4 milljónir króna, í bónus. Er nú fastlega gert ráð fyrir að fundinum verði aflýst.



















